sunnudagur, nóvember 07, 2004

I got soul, but I'm not a soldier

úff
ætlaði að fara að blogga eitthvað rosalegt
síðan kom Lára á netið
og þá bara voru konur (nefni ekki nöfn) bara rosalegar í bænum, höztlerí höztl, ljótar buxur og júlluhristingur.
svo er bara Lára að fara að pikka liðið upp sem getur ekki bara drullast heim til sín

var boðið í mat til stelpu með mér í bekk, kanastelpa, og þegar ég kom þangað þá sat liðið alveg agndofa yfir fyrsta OC í nýju seríunni! úú ég veit hvernig fer!!! þetta var rosalegt, þau hoppuðu upp úr stólunum, görguðu, hrópuðu, skræktu og ég veit ekki hvað og hvað. magnþrungið. jæja þá á víst núna að endurtaka þetta og við ætlum að horfa á OC núna á hverju fös kvöldi og borða saman. ætla að vona að ég orki það, þau er mjög fín en ó só american. síðan skellti ég mér á Bierkeller, þar var '68 partý (tónlist frá því tímabili) og Zack og Alena voru þar. það var mjög gaman og ég dansaði og skemmti mér. var reyndar ekki sátt við að einu viðreynslurnar voru frá manni í rauðum hlýrabol og megabrúnn og svo 2 40+ gaurum sem bíða spenntir eftir '70 parýinu því Zack sagði þeim að við færum pottþétt og þeir ættu nú líka að koma, way to go!
gærkvöldið var í rólegri kanntinum, ég og ein sem býr með mér lágum upp í rúminu mínu með snakk og nammi og horfðum á tvær DVD myndir, meikaði ekki að djamma þar sem ég ætlaði að vera fit í dag og læra og ég er auðvitað ekki enn byrjuð!


ohh þarf að fara að skila DVD-unum, tekur ekki nema svona rúman klukkutíma...

1 Comments:

Blogger Horny Ho said...

Til hvers að fara heim til sín þegar mar getur farið eitthvert annað!! Hvað er það...

8:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home