allt að gerast
Já hvur andskotinn - ég er bara að koma heim! Jább þriðjudaginn 25. júlí rétt fyrir miðnætti kem ég, eftir næstum 8 mánaða útlegð. Ég sem er búin að hlakka til er eitthvað að fá stresskast, sem ég skil ekki!
En eins og ég segi margt hefur gerst og margt er að gerast. Fyrst og fremst urðu Ítalir heimsmeistarar - hver hefði vitað að fótbolti gæti verið rómantískur!?! Ég og Udi horfðum á leikin saman og vorum næstum ein á einum barnum hér, sátum fremst og héldumst í hendur allan tímann. Síðan fögnuðum við með Ítölum hér í Tübingen eftir leikinn og áttum yndislegt kvöld sama
n!Jæja síðan höfum við stelpurnar verið að taka djammið hér með trompi og ég er eiginlega komin með smá ógeð - djömmum of harkalega!
<- sveitt á djamminu!
Ég er að vinna í brúnkunni, en það gengur svaka hægt! Skil þetta ekki, ég held að ég sé bara eitthvað gölluð, verð barasta ekkert brún! Ég sem ætlaði að vera orðin svaka skvísa áður en ég kæmi heim og "glenna" brúnkuna framan í glæra Íslendinga! Hef viku til stefnu, er að spá í að henda sólarvörninni og taka upp olíuna og vera bara ekta Íslendingur og hætta að læðast eftir húsveggjum þegar það er hvað heitast og bara vera hörð og ALLTAF vera í sólinni. Það er bara búið að vera of heitt og ógeðslegt að vera ALLTAF sveitt. jakk! EN aftur á móti ég vona að ég taki eitthvað af veðrinu með mér, svona handa ykkur : )
Jæja svo eru próf í þessari viku þannig að ég hef nóg að gera, semja próf, fara yfir og svo gefa út einkunnarblöð.
En núna ætla ég að fara út að skokka og gera Heidi Klum æfingar - maður á að verða eins og hún ef maður gerir þessar æfingar í 14 daga!
