sunnudagur, janúar 29, 2006

Gerist fyrir besta fólk

Jæja góðir áhorfendur, ég er enn á lífi og er að reyna blása lífi í þetta vesæla blogg.
Það er nú frá mörgu að segja enda margt að gerast í þessum blessaða heimi. Það ferskasta er þó Brechtbaufest sem fram fór á föstudagskvöldið og muna sumir meira en aðrir eftir því kvöldi og ætla ég bara að láta þar við liggja.
Ég kenni annars bara hér og kenni, milli þess sem ég elda ofan í útimanninn, hefði ekki trúað því sjálf, en ég er bara að verða afbragðs kokkur.
Það fer að styttast í Semesterferien, en þar sem ég er líka að kenna í kvöldskólanum þá er ekkert frí hjá mér. En síðan var Udi að segja mér að hann þarf kannski að fara til Ísraels í starfsnám í 3-4 vikur og er ég þokkalega svekkt, enda er hann svo óþolandi duglegur að læra að hann tekur sér ekki einn dag í frí og var ég farin að hlakka til að geta gert eitthvað með honum. En ég ætti kannski ekki að vera að væla, enda er fríið 2 mánuðir næstum. Við ættum að geta gert eitthvað saman, en okkur langar mikið að ferðast eitthvað, t.d. til Budapest.
Hér er annars allt vaðandi í Íslendingum, er mikið með henni Gunnu og svo stundum Herdísi, sem er hér með litla strákinn sinn Benedikt. Svo er herra Níels hér og hjálpumst við við íslensku kennsluna. Það eru svo 3 í viðbót hér í þessum litla bæ, sem ég þekki bara ekkert. Árlegi íslenski hópurinn er svo væntanlegur eftir viku, eða 5. febrúar, sem gæti varla verið verri tímasetning, enda allir í prófum akkúrat þessar 2 vikur.
Ég er alveg skelfileg, því ég er farin að spá í það í hverju ég ætla að vera í sumar og hvenær Freibad opnar, það er ennþá janúar og mínus 7 gráður. Öllum finnst mjög skrítið þegar ég kvarta undan kulda og segja að ég ætti nú að vera vön þessu og hætta þessu væli, ég þoli það ekki. En aftur á móti, þá væli ég líka á sumrin, því þá er mér of heitt!
Jæja, ætla að koma mér í rúmið, þarf að vakna óvenju snemma á morgun, eða um 9.
Gute Nacht.