Getur maður orðið einn af þeim?
Ég reyni og reyni og reyni að láta mér líka við þjóðverjann, en þeir gera mér svo gasalega erfitt fyrir! Auðvitað eru yndislegir þjóðverjar inn á milli sem ég kýs að kalla vini mína, en æi! Í dag er t.d. 6. júní og ég er ekki enn búin að fá útborgað! Og þá meina ég ekki að ég átti að fá útborgað 1. júní og 5 dögum of seint, neiiii ég meina að ég er ekki heldur búin að fá borgað það sem ég átti að fá útborgað 1. maí!!!! aaaaaaaaaarrrrrrrrrrrrrrrrg! Og svo segir þessi á þessari skrifstofu "já sko" ,(allt í monotón), " ég get ekkert fyrir þig gert fyrr en pappírarnir þínir koma hingað", ég:"já hvar eru helvítans pappírarnir?" "já ég veit það ekki", "nei einmitt, auðvitað ekki", klikk. Hring, hring - næsta skrifstofa "já nei pappírarnir eru ekki hér, þeir voru sendir aftur yfir til deutsche Seminar", sem sé pappírarnir mínir komnir á þá skrifstofu sem þeir byrjuðu á og afhverju? Jú því að konan á skrifstofunni út gleymdi að láta mig fylla út eitt blað! Svo voru þeir aftur sendir á skrifstofu #2 og ég býst við því að fá útborgað strax eftir þetta vesen, en það eru liðnar fokking TVÆR vikur síðan þetta var!! Á föstudaginn hitti ég reyndar gasalega næs konu, sem að sjálfsögðu getur ekki verið að vinna á þeim skrifstofum sem ég þarf að fara á, en var bara að labba framhjá og sá mig hárreyta sjálfa mig fyrir framan lokaðar dyr hjá skrifstofu #2 og spurði hvort hún gæti aðstoðað. Ég stóð auðvitað agndofa og starði á hana, er þjóðverji, sem í raun kemur málið alls ekki við, að bjóðast til að aðstoða mig!!?? Ég fékk næstum tár í augun, enda löngu orðin afar þreytt og pirruð á þessu máli! Konan leitaði í nokkrum bunkum, sem aðrir á skrifstofunni gátu ekki gert - pappírarnir kæmi í ljós þegar að þau væru búin að vinna niður þessa bunka, og hún fann pappírana mína! Ég var svo glöð því að nú gætu þeir haldið áfram yfir á skrifstofu #3 sem sér um peningamálin og útborgun!! Ég skoppaði um af gleði. En að sjálfsögðu var mölfluga í hveitinu "Já hér eru pappírarnir yðar, en þér vitið þó að Unikasse er lokaður eftir hádegi og í dag er föstudagur og á mánudaginn er frí þannig að þér ættuð að geta fengið útborgað, ja í fyrsta lagi á þriðjudaginn í næstu viku. " Ég náði að stilla mig, kreista fram bros og þakka kærlega fyrir mig.
Í dag er því dagurinn, dómsdagur, mun ég fá útborgað eða neyðist ég til að taka til minna ráða og TRYLLAST??
farin í hraðbankann

4 Comments:
Kannast við þetta... get nú ekki sagt annað en:
ÞJÓÐVERJAR!!!
Þetta er spennandi maður..ég verð að fá að vita hvernig þetta fór. Ég kynntist voða fáum þjóðverjum þegar ég bjó þarna. Allt einhverjir tyrkir, Marokkanar og allra þjóða kvikindi:)
Arg garg, hvernig fór þetta? Ertu búin að fá borgað? Ég hélt að Þjóðverjar væru allir svo hrikalega pottþéttir.
hey þú þarna!! Hvenær kemur þú á klakann?? Þér er allaveganna boðið í útskriftarveislu hjemme hos mig 24 júní;)
Skrifa ummæli
<< Home