Tveggja vikna fresti, er það slæmt?
Góðan dag gott fólk.
Í dag er mánudagur, sem þýðir aðeins eitt - þrif. Jább á mánudögum er ég "Putzfrau" og tek til í greninu ógurlega. Ég tek fyrst lest til Reutlingen, 10 mín og svo tek ég strætó í næstum klukkutíma, sem líður reyndar rosalega fljótt. Ég hef nefnilega nóg að skoða í strætóferðinni, það er ekki nóg með það að leiðin sem við förum er alveg rosaleg falleg, heldur er alltaf sama fólkið með mér í strætó, sem er alltaf troðfullur og þarf ég að standa stundum hálfa leiðina. Afhverju þurfa Þjóðverjar að vera svona hallærislegir?? Ein samferðakona mín er svo föst in the eigthies og fílar það. Önnur klæðir sig eins og hún sé sjötug en er rétt um þrítugt, situr alltaf með fílusvip og skoðar fólkið í kringum hana, munurinn á okkur er sá að hún gerir það með mjög svo gagnrýnu augnaráði, já ég veit ég er að gagnrýna, en ég er útlendingur, ég má, auk þess hef ég gaman að þessu og brosi til fólks. Svo er það stelpan sem sefur alltaf í strætó og missir ALLTAF af stoppinu sínu, magnað. Feiti feiti sem þarf tvö sæti, sem er stórmerkilegt, sérstaklega því mér finnst þýskt fólk flest allt bara mjög fit, því stendur feitt fólk virkilega út. Einn strákurinn lítur alveg út eins og Yu-Ki-Oh. Mismunandi fólk mætti áfram telja, en eitt eiga þau öll sameiginlegt - þau eru öll í ljótum skóm.
Jæja svo kem ég á leiðarenda og þríf í 4 klst. - jakk. Svo fer ég heim og ligg vanalega að drepast í bakinu allt kvöldið uppí rúmi því ég hamast svo þessa 4 tíma til þess að ná að gera sem mest.
Núna þarf ég að drífa mig, lestin fer eftir 15!

4 Comments:
Finnst þessar týpur hreinlega vera alltof fyndnar, hehehehe
Góða hvíld:)
Vá, hversu skítugt er eiginlega þarna? Ef þú þrífur stanslaust í 4 klst ...
Haha Putzfrau!!
skítugt
Skrifa ummæli
<< Home