Já ég veit
þetta er til háborinnar skammar! Ég skrifaði ekkert um það þegar hún Inga mín var hérna, en það var alveg yndislegt, en ég var svo miður mín þegar hún fór að ég gat ekki skrifað, alveg satt, ég grét og grét. Ég skrifaði ekkert um það þegar Udi kom tilbaka, ég hef bara ekkert skrifað lengi!
En já að hún systir mín hafi loksins komið til mín og séð fallega bæinn minn er enn eins og í draumi. Við nutum þess aðallega bara að vera með hvorri annarri og að borða hræðilega góðan mat, en Inga smakkaði falafel hérna og henni fannst það svo hræðilega gott að við borðuðum þar 2x á einum degi! Við skoðuðum líka Tübingen, sem er svo fallegur bær, og svo fórum við einn daginn í smá ferðalag og skoðuðum 2 kastala, Hohenzollern og Lichtenstein. Henni leist voða vel á Tübingen og langar að koma aftur og ætla ég að vona að hún geri það. Ég hugsaði í margar vikur eftir "ohhh hér var ég með henni Ingu minni" og fékk tár í augun. En lífið heldur víst áfram og ég hlakka bara til næstu heimsóknar.
Já og svo er Udi auðvitað löngu kominn og núna er skólinn byrjaður aftur og því situr hann nú fastur við skrifborðið og lærir, hann er svo ótrúlega duglegur, vildi óska að ég væri svona.
Í gær skelltum við okkur (ég og útimaðurinn) í smá göngutúr, sem endaði í svaka mótmælum þar sem fólk hafði safnast niðri í miðbæ umkringt vel útbúnum lögreglumönnum, með hjálma og allt tilheyrandi. Það var verið að mótmæla því að alltaf aðfarakvöld/nótt 1. maí safnast tvö bræðralög, Germania og Allemania, á Österberg og ganga síðan niður í miðbæ með kyndla í hendi og koma sér svo fyrir framan Stiftskirche og syngja þar allan þjóðsönginn, þar á meðal bönnuðu versin (Deutschland, Deutschland über alles). Þetta er aðsjálfsögðu ekki vel liðið , enda í anda nasista, og þurfa þeir því allan tímann á lögreglufylgd að halda, sem eru fleiri en þeir sem syngja. Mótmælendur safnast sem sé saman og öskra allskonar slagara eins og t.d. "Erste Mai, Burschi Frei!" sem á íslenskri tungu væri: "Fyrsti maí, bræðrafélags frír" og reyna að yfirgnæfa bræðurna. Síðan er hent í þá fúleggjum og fleirum skemmtilegheitum. Þetta er orðin löng tradition, þetta skiptið fór allt frekar friðsamlega fram, þó að þeir hafi stoppað stutt hjá Stiftskirche þar sem ekkert í þeim heyrðist því lætin í mótmælendum voru svo mikil og eins höfðu radikal vinstrisinnaðir nú þegar reynt að hindra að þeir kæmust að Stiftskirche. Svaka þýskt, ekki eitthvað sem maður upplifir á Íslandinu gamla, enda held ég að þessir bræður væru líka bara barðir í tætlur niðri í bæ hverja helgi!
Jæja ég ætla að drífa mig út. Er að fara að hitta hann Níels minn, nýta síðustu dagana sem ég hef hann hérna, en hann er að fara aftur heim til Íslands. Ég á eftir að sakna hans!

3 Comments:
Vááááá fænalííí!! Velkomin til lífsins
Þu getur líka flutt aftur til mín og Íslands..
já þetta var alveg yndislegt hjá okkur og ég á pottþétt eftir að koma aftur og við að njóta lífsins saman þú og ég hvar sem við verðum í heiminum - elsku litla systir mín - mundu hvað mér þykir vænt um þig
Þín Inga
Skrifa ummæli
<< Home