*vínsmökkun*
smakk smakk já erum að prófa vín fyrir bryllupið, mætti halda að það væri von á konungsbornu.
7 dagar to go í vinnunni, úfff vonandi lifi ég þetta af.
popptíví búið að auglýsa í allan dag dagskránna sína fyrir aumingja verkfallsbörnin, við erum búin að hlæja mikið að því í vinnunni í dag enda eru þeir að auglýsa Paridise Hotel og það er nú meiri sóða þátturinn og aldurshópurinn frá 6-16!! já já krakkar mínir saurlífnaður og óhófsdrykkja það er sko skemmtiefni við hæfi og fylgist þið vel með, ekki væri verra að glósa enda eru ófá djömmin framundan.
jæja ætla að fara að hringja í hana Guggu Jó mína, hún á afmæli í dag stelpan.
bæ
