mánudagur, apríl 04, 2005

svona getur gerst

Ég bloggaði einu sinni hérna undir yfirskriftinni úr dagbók lögreglunnar og langar að skella enn einu sinni inn gullmolum úr þeirri stórskemmtilegu bók!
Lögreglan í Keflavík var kölluð að Flughótelinu þar í bæ í gærmorgun. Varnarliðsmaður og íslensk stúlka sem hann hitti á skemmtistað höfðu tekið herbergi á leigu. Er hermaðurinn vaknaði var stúlkan horfin með jakka hans, farsíma og 54 dollara í reiðufé.
Sundlaugargestur í Vestmannaeyjum greip í tómt er hann hafði laugast og synt og hugðist snúa til síns heima. Fatnaður hans, buxur og grænn stuttermabolur, var horfinn. Einnig tveir silfurhringir og kveikjuláslyklar að bifreið hans með fjarstýringu.
Uppúr klukkan 14 á sunnudag vildi það óhapp til að hestur sló mann í andlitið skammt frá Iðu í Biskupstungum, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á Selfossi. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala í Reykjavík í Fossvogi. Ekki er vitað um meiðsli mannsins en þau voru ekki talin alvarleg. (vá ég vissi ekki að hestar hefðu þetta í sér!)
Lögreglan á Ísafirði hafði snör handtök eftir að borgari hringdi og sagðist hafa orðið vitni að því er flösku var kastað út úr bifreið sem ekið var um Fjarðarstrætið en hún mölbrotnaði við það. Lögreglan hafði uppi á bifreiðinni og var ökumanni hennar og farþegum gert að hreinsa upp eftir sig sóðaskapinn. (ohh man hvað það er mikið að gera hjá íslensku lögreglunni!)
...barst lögreglu tilkynning um mikla ólykt í húsi í Breiðholti. Lögreglan fór á staðinn og komst að því að þar höfðu kjötsneiðar gleymst í potti á hellu. Húsráðandi taldi í fyrstu lyktina ekki koma frá sér heldur frá nágranna sem hann taldi vera að brenna lauf.
Lögreglan í Reykjavík fékk aðfaranótt sunnudags tilkynningu um lágvaxinn mann sem gengi um íbúðargötu nærri miðbænum með salerni undir hönd. Hann hafði svo fleygt því í götuna og mölbrotið það með tilheyrandi sóðaskap og haldið ferð sinni áfram.
Rétt eftir miðnætti á föstudag óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð frá lögreglu vegna farþega sem hlaupið hafði úr bílnum án þess að greiða áfallið fargjald. Lögreglumaður náði farþeganum á hlaupum og var hann færður á lögreglustöð. Þegar þangað kom æstist farþeginn mjög og hóf að henda til munum. Var hann þá handtekinn og færður í fangageymslu. Með kannabisplöntu í bílnum. (ehhhhh í hvaða bíl?)
Snemma á laugardagsmorgun var tilkynnt um fólk í ástaratlotum í bifreið sem lagt var við pylsuvagn í miðbænum. Lögreglan hafði tal af elskendunum, reyndist þetta vilji beggja og var því ekkert frekar aðhafst. (carry on...)