fimmtudagur, maí 26, 2005

yndislegt alveg

Ég var að koma heim frá stuttri heimsókn til Tübingen, var þar í 12 daga. Það var alveg hreint yndislegt! Udi var sætastur og stelpurnar (Áslaug, Heiðrún og Lára komu og svo var Solla náttla þarna) skemmtilegastar.
Ég og Udi vorum næstum eins og límd saman og nutum við þess bara að vera tvö í rólegheitum. En síðan komu stelpurnar á laugardeginum 21sta og þá var allur friður úti. Við fórum á Schloss Café að halda upp á Eurovisiondaginn. Það var ROSA gaman, en að sökum ölvunnar þá náði ég ekki að fylgjast 100% með og hef ekki hugmynd um hvernig gríska lagið er!! Ég hélt með danska, norska og svo náttla ísraelska!
jæja Heiðrún er komin og er svöng og við vitum öll hvernig það er þegar hún er svöng, hún Heiðrún.

þriðjudagur, maí 10, 2005

Ég á bestu systur í heimi

Jább hún Inga var svo mikil dúlla áðan, hún gaf mér Ritzenhoff kampavínsglas í tilefni þess að ég var að klára prófin! Þetta kemur sér einkar vel þar sem ég hef verið að tala um það upp á síðkastið að íslendingar eru ekki nógu duglegir að fá sér freyðivín og skála fyrir lífinu og tilverunni, eins gott og það nú er nú gott og upplífgandi! Þjóðverjar eru alltaf að skála í "sekti" og blanda það jafnvel út í appelsínudjús og þess háttar, því maður þarf víst ekkert endilega að finna á sér!
Í gær tók ég sem sagt síðasta prófið mitt í þýsku við Háskóla Íslands og moonwalkaði út úr stofunni að því loknu, svona bara í tilefni þess. Svo fórum ég og Gugga Yo heim til hennar og drukkum 2 hvítvínsflöskur og lágum í pottinum heima hjá henni í næstum 3 klst. Kíktum svo aðeins niður á stúdentakjallara í einn bjór og ég var svo komin heim kl. 11 en var þá orðin dauðþreytt.
Í dag fór ég svo í brasilískt vax! hmmmm! stelpur það er alls ekki eins vont og maður heldur (og þeir sem hafa séð beauty kvölds myndirnar þar sem Heiðrún var að vaxa á mér fæturnar um daginn þá sjáið þið að mér þykir alls ekkert rosa gott að láta vaxa mig, var meira að segja farin að halda að Heiðrún væri haldin einhverskonar píningarþorsta). Alla vega ég fór á þessa stofu http://www.fegurd.is og verð bara að segja að þjónustan þar er alveg frábær og þetta var alls ekkert eitthvað pínlegt eins og maður gæti nú haldið!!! Nei þetta var nú alls ekkert "það" vont, og ég er alveg á því að fara þangað aftur!
En núna þarf ég að fara að taka til og undirbúa þýskalandsförina!

sunnudagur, maí 08, 2005

Ég elska...

...Iceland Express þýskufrasana!
"Ich komme mit neunundneunzig Lutballons mit einem Flugzeug aus Island."
"Ein bisschen Frieden, ein bisschen Sonne."
"Es ist Sauerkraut in meinen Lederhosen."
"Nein, Du verstehst das nicht, Wale sind gross und böse und fressen alle Fische weg."
"Nein! Isländer sind keine Eskimos, Dummkopf."
"Ja, ich komme! Ich komme schnell!!!"
"Hekla ist nicht nur ein Vulkan, sondern auch ein Autohändler."
"Gibt es hier ein David Hasselhoff Istitut?"
og svo síðast en alls ekki síst
"Das ist ja cool!" (þessi með mullet og mottu, stuttermabol, þar sem stuttermarnar hafa verið klipptar af sem og bolurinn sjálfur svo að hann hylji ekki naflann, klipptar snjáðar gallabuxur sem hylja helst ekki rasskinnarnar til fulls, góðir sandalar og svo hvítu íþróttasokkarnir)

Já þýskan er fallegt tungumál!

En já talandi um þýku! Ég er að fara til Þýskalands!! Að þessu sinni bara í 12 daga, en langþráðir 12 dagar. Já ætla ég að fara að heimsækja hann Udi minn, sem og aðra og fá mér kannski Würst og Sauerkraut, svo ég tali nú ekki um þýskan eðal bjór! Já og svo koma þær Áslaug, Heiðrún og Lára á laugardeginum 21. maí og þá verður sko fjör! Eurovisionfjör!

Núna ætla ég hins vegar að fara að gera mig tilbúna og fara heim til Guggu Yo að læra undir síðasta þýskuprófið innan veggja Háskóla Íslands, jæja vona ég allavega.

Bið ykkur vel að lifa