miðvikudagur, júní 28, 2006

kvöldið

Ætlaði að taka mig til og skrifa hér eitthvað skemmtilegt fyrir ykkur fáu en dyggu lesendur, en síðan áttaði ég mig á því að klukkan er orðin og ég þreytt.
Hér er bara fótbolti fótbolti og er rosa gott að fá þessi tvö fótboltalausu kvöld núna, þá fæ ég smá athygli frá kallinum!


Annars ætlum við stúlkurnar hér að skella okkur til Stuttgart á laugardaginn, stelpudagur!! Stefnan tekin á H&M og Pizza Hut Hut Hut! Svo á sunnudaginn ætlar Zack að halda upp á 4th of july, en samt sko 2. júlí af því að það kemst enginn á þriðjudaginn! En hann ætlar að grilla all american burgers og það verður svaka stööööð.
þangað til...

sunnudagur, júní 18, 2006

Sviti sviti svitabað

Mér er heitt og það er engin undankomuleið. Ég fór í kalda sturtu - ég fer aldrei í kalda sturtu. En ég get víst ekki verið í sturtu í allan dag. Ég reyni því að vera inni - en ég er fátæk, ég er ekki með neina loftræstingu. Mér er heitt.
Það var jú 17. júní í gær. Ég var búin að segja nemendum mínum frá því öllu, hittingur á Þingvöllum, Jón forseti og rigningin - hæ hó. Við hittumst síðan upp á Österberg í gær og grilluðum, það var yndislegt. Ég og Gunna gerðum okkur spjót með grænmeti og kjöti og svo var drukkuð vín í blíðskapar veðri, yndislegt. Ég á von á myndum frá Zack þar sem mín myndavél tók sér frí og koma þér vonandi innen alt for lange. Síðan horfði ég á Ítalíu - USA með Ehúði mínum og eftir það skelltum við Gunna okkur á skrall langt fram á morgun. Það er ömurlegt að vera þunnur í svona hita.
Klukkan er orðin fimm ég ætla að vona að það fari nú að kólna. Mér er heitt.
Og já, til að ljúka hinni feykispennandi launamálasögu - ég er búin að fá útborgað!!! Það gekk fyrir rest og vil ég þakka veittan stuðning.
Góðar stundir

þriðjudagur, júní 06, 2006

Getur maður orðið einn af þeim?

Ég reyni og reyni og reyni að láta mér líka við þjóðverjann, en þeir gera mér svo gasalega erfitt fyrir! Auðvitað eru yndislegir þjóðverjar inn á milli sem ég kýs að kalla vini mína, en æi! Í dag er t.d. 6. júní og ég er ekki enn búin að fá útborgað! Og þá meina ég ekki að ég átti að fá útborgað 1. júní og 5 dögum of seint, neiiii ég meina að ég er ekki heldur búin að fá borgað það sem ég átti að fá útborgað 1. maí!!!! aaaaaaaaaarrrrrrrrrrrrrrrrg! Og svo segir þessi á þessari skrifstofu "já sko" ,(allt í monotón), " ég get ekkert fyrir þig gert fyrr en pappírarnir þínir koma hingað", ég:"já hvar eru helvítans pappírarnir?" "já ég veit það ekki", "nei einmitt, auðvitað ekki", klikk. Hring, hring - næsta skrifstofa "já nei pappírarnir eru ekki hér, þeir voru sendir aftur yfir til deutsche Seminar", sem sé pappírarnir mínir komnir á þá skrifstofu sem þeir byrjuðu á og afhverju? Jú því að konan á skrifstofunni út gleymdi að láta mig fylla út eitt blað! Svo voru þeir aftur sendir á skrifstofu #2 og ég býst við því að fá útborgað strax eftir þetta vesen, en það eru liðnar fokking TVÆR vikur síðan þetta var!! Á föstudaginn hitti ég reyndar gasalega næs konu, sem að sjálfsögðu getur ekki verið að vinna á þeim skrifstofum sem ég þarf að fara á, en var bara að labba framhjá og sá mig hárreyta sjálfa mig fyrir framan lokaðar dyr hjá skrifstofu #2 og spurði hvort hún gæti aðstoðað. Ég stóð auðvitað agndofa og starði á hana, er þjóðverji, sem í raun kemur málið alls ekki við, að bjóðast til að aðstoða mig!!?? Ég fékk næstum tár í augun, enda löngu orðin afar þreytt og pirruð á þessu máli! Konan leitaði í nokkrum bunkum, sem aðrir á skrifstofunni gátu ekki gert - pappírarnir kæmi í ljós þegar að þau væru búin að vinna niður þessa bunka, og hún fann pappírana mína! Ég var svo glöð því að nú gætu þeir haldið áfram yfir á skrifstofu #3 sem sér um peningamálin og útborgun!! Ég skoppaði um af gleði. En að sjálfsögðu var mölfluga í hveitinu "Já hér eru pappírarnir yðar, en þér vitið þó að Unikasse er lokaður eftir hádegi og í dag er föstudagur og á mánudaginn er frí þannig að þér ættuð að geta fengið útborgað, ja í fyrsta lagi á þriðjudaginn í næstu viku. " Ég náði að stilla mig, kreista fram bros og þakka kærlega fyrir mig.
Í dag er því dagurinn, dómsdagur, mun ég fá útborgað eða neyðist ég til að taka til minna ráða og TRYLLAST??
farin í hraðbankann