mánudagur, júlí 17, 2006

allt að gerast

Já hvur andskotinn - ég er bara að koma heim! Jább þriðjudaginn 25. júlí rétt fyrir miðnætti kem ég, eftir næstum 8 mánaða útlegð. Ég sem er búin að hlakka til er eitthvað að fá stresskast, sem ég skil ekki!
En eins og ég segi margt hefur gerst og margt er að gerast. Fyrst og fremst urðu Ítalir heimsmeistarar - hver hefði vitað að fótbolti gæti verið rómantískur!?! Ég og Udi horfðum á leikin saman og vorum næstum ein á einum barnum hér, sátum fremst og héldumst í hendur allan tímann. Síðan fögnuðum við með Ítölum hér í Tübingen eftir leikinn og áttum yndislegt kvöld saman!
Jæja síðan höfum við stelpurnar verið að taka djammið hér með trompi og ég er eiginlega komin með smá ógeð - djömmum of harkalega!
<- sveitt á djamminu!


Ég er að vinna í brúnkunni, en það gengur svaka hægt! Skil þetta ekki, ég held að ég sé bara eitthvað gölluð, verð barasta ekkert brún! Ég sem ætlaði að vera orðin svaka skvísa áður en ég kæmi heim og "glenna" brúnkuna framan í glæra Íslendinga! Hef viku til stefnu, er að spá í að henda sólarvörninni og taka upp olíuna og vera bara ekta Íslendingur og hætta að læðast eftir húsveggjum þegar það er hvað heitast og bara vera hörð og ALLTAF vera í sólinni. Það er bara búið að vera of heitt og ógeðslegt að vera ALLTAF sveitt. jakk! EN aftur á móti ég vona að ég taki eitthvað af veðrinu með mér, svona handa ykkur : )
Jæja svo eru próf í þessari viku þannig að ég hef nóg að gera, semja próf, fara yfir og svo gefa út einkunnarblöð.
En núna ætla ég að fara út að skokka og gera Heidi Klum æfingar - maður á að verða eins og hún ef maður gerir þessar æfingar í 14 daga!

11 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ja hénna gugu að blogga....Hlakka til að fá þig heim!!

12:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

einsog talað útúr mínu hjarta!!!!

5:56 e.h.  
Blogger Guðrún said...

Ji hvað ég hlakka til að sjá þig sæta!! á nokkuð að skella sér til Eyja?!?!

8:28 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gvöð minn góður... viltu kenna mér að gera svona Heidi Klum æfingar þegar þú kemur heim... langar að verða eins og hún...

Þú mátt svo ekki klikka á að skipuleggja hittinginn ;o)

10:28 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Óged á djammi!!!!??? Skammastu tín bara! Tu ert buin ad vera ekkert nema heilsan og romantikin med Utimanninum! Hvernig lidur annars Skildi...? ;0)

10:39 f.h.  
Blogger Solla said...

hey, ég veit að þú varst ekkert að vinna í dag og verður örugglega svipað á morgun... ALSO, ich meine, hvernig væri að skella í eitt blogg??

5:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hey Gugs;0)
Helv... gemsinn minn virkar ekki hérna úti í rassgati og ég veit ekki heimasímann hjá þér... I'm cold and there are wolves after me!!!! Símanúmerin hér eru á blogginu mínu;0)

4:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég skrevaðe nafneð mett veð kommenteð mett!
Also, le Gunns

4:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

heyrru... mar fer bara að krefjast þess að fá færslu hér til að geta fylgst með...

1:11 e.h.  
Blogger Guðrún said...

Ertu hætt???????

11:29 f.h.  
Blogger Guðrún said...

Þú ert ömurlegur bloggari!!!

9:13 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home