laugardagur, janúar 22, 2005

Sólin skín...

...og ég er að spá í að skella mér í göngutúr!
Ég á endalaust af skemmtilegum myndum sem ég verð að fara að skella hérna inn, hef ekki haft tíma eða nennu í það.
Fór að sofa snemma í gær og er því vöknuð fyrir allar aldir í dag!
PLAN DAGSINS:
Vakna √
Borða- herbó √
Sturta
Göngutúr
Borða - herbó
Verkefnavinna
Gera mig til
Út að borða með kananum og JDog

Ágætis plan, ég bið ykkur vel að lifa.


föstudagur, janúar 21, 2005

Mér leiðist....

...en ég er of þunn til að gera eitthvað í málinu!
Komin aftur til Tübba og ætti að vera að læra en...
Æi þegar maður er einmitt nákvæmlega í þessari "stellingu" sem ég er í akkúrat núna þá langar mann barasta að hoppa upp í bíl með vinkonum sínum (veit ekki með þínar en mínar eru bestar) og keyra um og fá sér eitthvað sveitt að borða, fara kannski í sund, aftur eitthvað sveitt og svo í bíó/video eða bara einhverskonar ævintýri (ýta bíl upp brekku og hoppa síðan inn í hann á ferð) BARA AÐ GERA EITTHVAÐ þar sem engrar einbeitingar er krafist eða að minnið sé á rec! Látum okkur nú sjá! Hér er enginn bíll, eina vinkona mín hér sem ég nenni að gera svona lagað með er eins og alltaf á föstudögum EKKI HÉR HJÁ MÉR og svo er ég í megrun þannig að ég má ekki fá mér SVEITT og bíó er á þýsku og það er bara helvíti mikið effort að fara að leigja video!!!!!!! Ævintýrið væri kannski að labba niður á lestarstöð og fara bara inn í einhverja lestina, en það er líka of mikið efffort og ekki eins ánægjulegt ef maður er solo!
My so called best friend kanahelvítið er bara jerk og ekkert meira.
Ísrealinn er of mikill námsmaður til að eyða einni mínútu af degi í svona vitleysu.
og æi stundum vill maður bara hanga með stelpum, það getur tekið svo á taugarnar þegar maður hangir einungis með fólki af hinu kyninu - vantar svona ég-skil-þig-fullkomlega fílínginn sem að ég fæ frá kynsystrum mínum.
Ætli þessi dagur verði ekki bara eins og svo margir aðrir, hangs á netinu og bíða eftir því að eitthvað ÓGEÐSLEGA skemmtilegt klessi á mig.

mánudagur, janúar 03, 2005

Á Íslandi

Já það er bara ágætt að vera hérna!! Þarf nú líka að venjast því aftur þar sem ég er alkomin (eða allavega fram á haust, en þá er óvíst hvað verður) 24. feb og bý þá ekki lengur ein heldur hjá eldrunum, ekki auðvelt að venja sig á það eftir smjörþefin af einbúalífinu.
Ég og sys vorum með Herbalife kynningu hérna áðan og fór ríflega helmingur gesta út hlaðinn Herbalife Shapeworks vörum og von um betra líf og heilsu og svo auðvitað peningana sem lagðir voru í pott og sú sem stendur sig hve best (kíló/sentimetrar/heilsa/hressleiki) fær pottinn.
Jæja stutt og laggott, klukkan er orðin...