föstudagur, desember 17, 2004

Sælt veri fólkið

Jæja kem heim eftir 2 daga, það er kannski eitthvað til að gleðjast yfir.
Er samt svo langt frá því að vera glöð - þarf að skrifa skítaritgerð yfir jólin.

Jú jú ég er náttla aldrei óglöð - ég meina ég reyni alltaf að líta á björtu hliðina og hún er núna sú að úpps hvaða ritgerð?
Það er Luciafest í kvöld - Skandinavistar halda þessa gleði (að þessu sinni hér í Rottuborg) og verður sungið og trallað fram eftir nóttu! Ég og nemendurnir mínir ætlum að syngja um jólasveinana og kynna þá! Síðan verður sungið og norsku, dönsku og sænsku og síðan verður Súrsokkasaga sett á svið (íslendingasögur leiknar af súrum sokkum).
Æi nenn'ekki a blogga meir, meira síðar.

Tschüss

mánudagur, desember 13, 2004

BESTI DAGUR ÁRSINS!!

ég á afmæli í dag!!!!!!!

mánudagur, desember 06, 2004

Úr dagbók lögreglunnar

Í ástaratlotum við pylsuvagn
Snemma á laugardagsmorgun var tilkynnt um fólk í ástaratlotum í bifreið sem lagt var við pylsuvagn í miðbænum. Lögreglan hafði tal af elskendunum, reyndist þetta vilji beggja og var því ekkert frekar aðhafst.

Stúlka með fölsuð skírteini sótti beljaka
Ráðist var á dyravörð á skemmtistað í miðborginni. Stúlka hafði komið að staðnum og reynt að komast inn á fölsuðum skilríkjum. Voru skilríkin haldlögð og hélt þá stúlkan á brott en kom stuttu seinna með tvo þrekna menn með sér sem lömdu dyravörðinn og náði hún skilríkjunum af honum í kjölfarið. Dyravörðurinn var með sprungna vör eftir átökin.

Konjakið teigað af stút
Rétt fyrir miðnætti var óskað aðstoðar lögreglu á veitingastað í austurborginni. Þar hafði matargestur drukkið eina og hálfa koníaksflösku og neitaði svo að greiða fyrir veitingarnar. Drukkið var af stút þannig að ekki reyndist unnt að bjóða það sem eftir var af flöskunni.

Blóðbað
Um hálftvö aðfaranótt sunnudags hringdi kona í lögreglu og tilkynnti að blóð væri um alla íbúð. Illa gekk að fá upplýsingar hjá henni svo sjúkralið og lögregla voru send á staðinn. Konan reyndist vera með lítinn skurð á fingri og fékk hún plástur hjá sjúkraflutningamönnum.

og segjum svo ekki að lögreglan á Íslandi hafi ekki nóg að gera!

vika síðan...

...ég bloggaði síðast!

Hvað get ég sagt? jú ég get svo sem sagt ykkur að það er mikið að gera, lærilær! Er að druslast til að klára þennan bévítans fyrirlestur, það er nú meiri viðbjóðurinn! Er að gera hann með Alenu (hans Z) og 2 þýskum stelpum og þær sögðu mér að segja þegar ég byrja að tala að ég sé frá Íslandi, því að mér verði þá allt fyrirgefið! Er það ekki svolítið þroskaheft?
Er ekki búin að vera jafn dugleg á djamminu eins og síðasta ár, er það ekki líka bara í lagi? Fór nú samt í 3 partý á fös. Fyrst skellti ég mér í hið vikulega O.C-matarboð (þar sem við sem sé borðum og horfum á OC ) og skellti mér svo í afmælisboð til hennar Söschu minnar og svo endaði ég í einhverju undarlegu jólapartý! Jólapartýið var rosa fínt, örugglega um eða yfir 300 manns þar (á einhverju stúdentagarðinum) og fólk misölvað (Udi var á rassgatinu og fannst víst rosa fyndið að syngja "Deutschland, Deutschland über alles" fyrir einhvern þjóðverjann! (fyrir þá sem ekki vita þá er það alls ekki sniðugt, er reyndar meira að segja alveg bannað!))
Í gær skelltum ég og Z okkur til Reutlingen ("næsti" bær) og þar á knæpu sem heitir The other place og er biker/rokk bar! Mjög mikið af áhugaverðu liði þar! Ég var reyndar svo innstillt á það að verða ekki þunn að ég drakk bara KiBa (kirsuberja- og bananasafts blanda) allt kvöldið (sagði reyndar ekki nei við Tequila Ahoj og 2 Dracula staupum) og þótti mér bara helvíti skemmtilegt að fylgjast með því hvað fólk varð vitlausara og vitlausara með hverjum sopanum!

Jæja ég verð víst að fara að koma mér í háttinn, þarf að vera dugleg á morgun, lærilær!!

HEY BTW VIKA Í AFMÆLIÐ!!

og já langaði að benda á þessa síðu hér sem hún Sollubuff benti mér á http://che.uf.is/