Shiii
Já góðan og blessaðan daginn, fallegur dagur sólin skín en ég er með hálsbólgu! Boðið í partý í kvöld, þakkargjörðarhátíðarpartý hjá honum Zack mínum, ég sé mig knúna til þess að fara samt, því hann er ekki búinn að tala um annað í u.þ.b. 3 mánuði! Verður samt enginn kalkúnn, þar sem helmingur gesta og betri helmingur hans Zack eru grænmetisætur!
ÚtiMaðurinn var að kaupa sér nýjan gítar á ebay, mjög fallegur, og var hann að fá hann í hendurnar fyrir u.þ.b. 40 mínútum, hann reyndi að plata sjálfan sig með því að reyna að sannfæra mig um að hann ætlaði að láta hann vera í dag, enda þarf hann mikið að læra í dag og jújú hann snéri sér að lærdómnum, í svona u.þ.b. 5 mínútur en situr nú og spilar eins og í trans, ekki hægt að ná sambandi við hann og ef ég reyni að rífa af honum gítarinn er ég viss um að hann muni kýla mig kalda.
Dagurinn í dag fer eflaust í það að kaupa í matinn, eins og svo oft, en það er fyndið hvað það getur tekið langan tíma þegar maður er ekki á bíl og þarf að fara í hina og þessa búð til að finna það sem maður þarf. En ég fékk það verkefni útdeilt að búa til salat fyrir kvöldið, hver og einn á að koma með eitthvað með sér! Udi ætlaði að búa til hummus en ég stórefa að hann gefi sér tíma í að koma í kvöld, hvað þá búa til hummus.
Langar svo að benda mínum dyggu lesendum á vefsíðuna perezhilton.com en þar fær maður nýjasta slúður hollywood beint í æð, og þið Laguna Beach aðdáendur fáið einnig ykkar fix (og er ég skoooo einn dyggasti aðdáandi þessara drama-loving táninga!). Ég er búin að horfa á alla 2. seríu, sem er mikið meira krassandi heldur en sería 1, jább! En núna hef ég ekki fengið minn skammt í langan tíma og þarf víst að bíða fram á vor, held ég, því þá kemur LB 3, þótt að það verði ekki jafn skemmtilegt held ég, enginn af gömlu góðu, en systir hennar LC verður víst aðal þar. En LC, hin elskulega, verður með sinn eiginn þátt The Hills, þar sem við munum geta fylgst með henni plumma sig í LA (LA, LB, LC...) og ekki ætla ég að missa af því!
Síðan eru eflaust allir búnir að heyra þetta með Jessicu....
