*Jesús rokkar*
Fór í gær að hlusta á Arnald Indriðason lesa upp úr bók sinni Todeshauch (Grafarþögn á frummálinu). Einhver náungi las upp úr þýsku útgáfunni með tilþrifum og svo las maðurinn sjálfur stuttan kafla á íslensku, allt í sömu tóntegund. Við hlið mannsins sat svo þýðandinn, þýsk, þybbin og þrútin, rjóð í vöngum og útþanin af stollti. Helvíti flott að tala íslensku. Svo eftir lesturinn þá var maðurinn spurður spjörunum úr og allir hlógu og flissuðu þegar hann kom með dæmi sem sýndi hvað Ísland er ansi lítið, skrýtið og saklaust land, ahhhh en sætt!!
Fór svo eftir á með henni Kiddu minni á Tangante Night, staður sem er hér í Tübi. Sátum þar og lætum okkur leiðast í félagsskapi hvorrar annarar og föttuðum að við þekkjum kannski barasta helvíti fáa hérna. Jæja það komu svo nokkrir náungar inn sem við þekkjum en þeir stoppuðu stutt. Við ákváðum þá að taka á rás og við hlytum að finna einhvern sem við þekktum. Við vorum varla komnar út fyrir dyr þegar við rákumst á norsarann sem kennir einmitt norsk hérna við uni-inn og er já rétt yfir eða undir 30. Hann er alveg helvíti hommalegur en virðist geta heillaði þýska kvenflokkinn algjörlega upp úr skónum, ætli það sé ekki þetta pjúra aríalúkk!! Hann er í kakí buxum, skyrtu (girt) og með hárið greitt í smá væng og svo til hliðar. Jæja við ákváðum eftir að hafa fundið þennan á götunni og nokkra vini hans að skella okkar á Jazzkeller, sem kemur djass ekkert við, og taka nokkrar sveiflur, sem ég hef þráð svo mjög því mínir menn eru ekki dansmenn. Og norsarinn brást ekki frekar en fyrri daginn, ég hef nebbla dansað með kauða áður og það er sýn fyrir sár augu! Sjáið fyrir ykkur manninn sem áður var lýst, með sundurglentna fætur og taka vel valin "negra" spor, já já hipp-hoppast! ohhh ég elska það og svo verður hann svo helvíti einbeittur í framan og sannfærður um að hann sé svalasti náunginn á staðnum, óborganlegt. Já og svo var Jesús þarna, sítt brúnt hár og klæddur í víð föt, hvít frá toppi til táar, friðsæll í framan og hoppaði eins og óður maður um allt dansgólf, himneskur.
Síðan fór fólk að róast og byrjað að spila þýsk popplög og þá veit maður að ætlast er til að maður fari að hypja sig svo það er bara best að hlíða, enda vill maður ekki lenda í útistöðu við þýskara, nei.
Á leiðinni heim hitti ég síðan kommúnistana mína sem voru einnig á leið heim og þau látast alltaf vera svo gasalega glöð að sjá mig, en svo um leið og ég kem nær þá setja þau upp vegginn, ég er nú reyndar búin að mölva hann hér og þar og farin að sjá rétt í nokkra, en þetta tekur víst sinn tíma, ekki að ég sé eitthvað spennt.
Já svo er bara planið að vera róleg í kvöld, leigja held ég DVD með kananum og slappa af.
Svo er bara rétt rúm vika að konan birtist, eru ekki allir spenntir, ég er það allavega!