Skilnaður
Jæja eins og allir ættu að vita þá er draumaparið að skilja og rúmorinn segir að þessi séu við að það fara sömu leið!
Ég verð nú bara að segja HJÚKKET! Þótt að ég sé búin að skipta um fyrirmynd þýðir ekki að ég sé búin að yfirgefa hana Britney mína og stend ég með henni á þessum erfiðu tímum. Mér hefur aldrei líkað við Federline, Fakerline eða hvað sem hann heitir! Ég hef ekki enn gefið Britney og Justin upp á bátinn, þau eiga að vera saman.Eins verð ég nú að segja, þótt að Nick og Jessica höfðu verið rosa sæt í Newly Weds þá hefur mér alltaf fundist hann B-class og hún A+! OK ég veit, Jessica er ekki sú klárasta, en hún leynir á sér og er heldur ekkert að fela það að hún viti ekki allt! Ég hef lesið á Perezhilton.com að hún sé búin að vera að syngja blús greyið, en þarf víst ekki að leita að öxl til að gráta á því að fólk slæst um að ljá ljóskunni fögru eyra og er orðið á götunni að Johnny nokkur Knoxville hafi verið fyrstur til að banka upp á! OK hún Jessica mín gæti gert betur, en allt er hey í harðindum!
Gugu Simpson, talar frá Schwabenland.
