ótrúlegt ótrúlegt ótrúlegt
Mamma og pabbi koma eftir 6 daga!! trúi því ekki og eftir 13 verð ég heima!! ótrúlegt hreint út sagt!!
Jæja ligg uppí rúmi, vel kalt, smá lasin, ekki gott
Stemmari í húsinu, allir að skipuleggja partýið á lau, fjöll af bjór niðri og hólar af áfengi
Verður rosa pattý mar, 3 evrur inn og ódýrt á barnum, Schlossbergstrasse 23 Haus Rothenburg ef einhver hefur áhuga
já meira að segja gamlir meðleigjendur alls staðar að koma til að vera með
þetta er sem sé jólapattý og verður unnið hörðum höndum við að skreyta húsið hátt og lágt í dag og á morgun
get ekki sagt annað en að ég er nú barasta nokk spennt
síðan er Tübingen að komast í jólabúninginn, jólaljós og tré farin að sjást víða, vantar barasta snjóinn, en mér skilst að það sé nú snjólaust líka þarna heima á fróni!
jæja spá í að leggja mig
