sunnudagur, október 26, 2003

Ég er ekki búin að nenna að skrifa hér inn, fannst síðan svo ljót, en ég er að vinna í því að gera hana sæta!!!
Ostafondue partý hér í gær og voru refsistaup ef þú misstir brauðbitann ofan í, afleiðing: Fonduepotturinn varð að orustuvígvelli!! Þetta var mjög gaman, þvílíkt stuð, enda ber sjónvarpsherbergið (þar var Fondue-að!) þess merki!! Held meira að segja að einn sófanna hafi fokið út um gluggann í gær, eða hann er allvega úti núna!!!
Huhhh ég sem hafði brjálaðar áhyggjur af því að mér myndi leiðast og vera ein um helgina og síðan var bara djamm báða daga!!
Jæja afleiðingar gærkvöldsins segja til sín og ég meika ekki meir, er farin að sofa.....

laugardagur, október 25, 2003

er að vinna í þessu