Váts 2 mánuðir
Ég á að skammast mín ég veit það, hef meira að segja verið skömmuð!
Látum okkur nú sjá hvað er að frétta, jú ég hef viku til stefnu til þess að líta út eins og Jessica Simpson! Afhverju spyrðu, af því að ég elska hana og dýrka og líka útaf því að Udi er að koma, jibbý!
Og núna veltið þið því fyrir ykkur HVERNIG getur hún sagt þetta! Vill líta út eins og JS en er með Guðrún Spears skrifað stórum stöfum hérna á síðunni! Og ég bara viðurkenni, ég hef svikið hana Britney mína! Mér finnst hún Jessica bara svo mikið æði! Hún prumpar og ropar og heldur síðan að túnfiskur sé kjúklingur! Ég mun alltaf geyma Britney í hjarta mínu, ég er bara á smá Jessicu-phase núna!
Það er að koma verslunarmannahelgi og ég er að passa á föstudaginn! En ég bæti það upp með því að skella mér til Eyja á sun með júllunum. Svona af því að kallinn er ekki enn kominn úr einangruninni í Hrísey.
Hey taktu þér penna í hönd og skrifaðu nunnumunnur - svaka gaman!
