Jájá
Alena kærasta hans Zack míns varð 21 á föstudaginn (Hanna mín átti nú líka afmæli, varð aðeins eldri) og var bara andskoti gaman í partýinu! Zack hefði þótt mátt sleppa því að spila rauðhálsa músík, enda var henni mótmælt ákaft, við grýttum í hann öllu sem hendi var nær, tómötum, osti, flöskutöppum usw. Já og síðan var ein helvíti skrýtin þarna, vinkona hennar Kjersti, þýskari. Hún sat á móti mér og starði á mig, sagði svo að ég liti alveg út eins og alvöru víkinga kona og hélt áfram að stara og tók svo myndir í gríð og erg, hún endaði kvöldið með að detta í gólfið í einhverri brjálaðislegri danssveiflu.
Ég er kominn með minn eigin persónulega stoker, hann er tyrki og leigubílsstjóri. Hann segist vera rosalega ríkur og vill að ég greiði hárið þannig að ég taki það frá andlitinu! Vill að ég drekki með sér kaffi einn daginn og hann er til í að skutla mér hvert sem er ÓKEYPIS! Þetta er sko í lagi, hann hefur áður átt unga kærustu hún var 19 þegar þau byrjuðu saman og er 21 í dag, hann dömpaði henni. Hann er sko ríkur.
OK ég hef ekkert á móti tyrkjum, en þeir stara, benda, gefa frá sér allskonar viðbjóðs hljóð þegar maður gengur framhjá og passaðu þig á því að horfa ekki í augun á þeim, því þá ertu þeirra! Annars bý ég nú reyndar með einum sem er algjört yndi! (svona til að draga aðeins úr fordómunum!)Æi ég get allavega varla ímyndað mér Jón Jóns haga sér eins á Laugarveginum "vúúúú sjá þig heita skvísa, hvernig væri að koma heim til mín og hita upp rúmið mitt, ahhh ha mmmmmm, jájájájá, úúú Siggi sjáðu hana, úff heeeeeiiiit" tja, þetta virkar ekki einu sinni á íslensku, eða?
Í dag eru akkúrat 3 vikur þar til ég kem heim. Ef ég væri ekki að koma hingað aftur held ég að ég væri í hálfgerðu panikkasti! Þótt ég hlakki nú til að koma heim og sjá alla og horfa á sjónvarpið á ensku og með texta, þá líður mér svo vel hér í Tübba mínum. Reyndar verður skrýtið að koma aftur hingað þar sem að flestir vina minna hér eru skiptinemar og eru að fara aftur til sinna heimahaga, en Zack, Udi og Solla verða áfram, það er mikilvægt. Verður reyndar mjög skrítið að vera Kiddulaus en ces´t la vie!
Jæja ætla að drífa mig niður í eldhús, orðið er að þar séu kökur, ætla að tjekka þær, þó að mér finnist kökur hér í D-landi vanalega heldur óspennandi. Jæja þá er það eitt enn sem ég get ekki beðið eftir, almennilegur matur, mömmumatur og Ingu-systirmatur.
Tschüssle!