mánudagur, maí 10, 2004

Er að reyna að gera eitthvað í þessu

já kominn tími til að þetta verði allvöru blogg
ætla að reyna að redda commenta dóti og svo skella inn meiri myndum!!

Er núna a' skrifa ritgerð um "Was ist Kultur?" og er gjörsamlega andlaus!!

föstudagur, maí 07, 2004

*sítt að aftan*
halló sæti heimur
jájá já það er allt að gerast hér í húsi rottanna jájájá
ég er sko á leiðinni með ósó svensk-útlítandi Knut að versla áfengi fyrir partýið á morgun og það eru víst 67 flöskur af rótsterku áfengi og svo meira til, jájá
Búin að vera í allan dag að setja barinn saman, þrífa, stilla upp glösum og sonna, jájá
jájá það verður sko stuð hér á Kastalberghæð á morgun. Þetta byrjar allt saman á því að ég og kommúnistarnir grillum saman með hljómsveitinni sem spilar (pönk hljómsveit frá Stuttgart sem spilar víst monkeystyle og guð má vita hvað það nú er) já og síðan fara hjólin að snúast um 9 og mun ég þurfa að vinna í 3klst aftur eins og síðast! það er náttla drepleiðinlegt en svona er þetta
já svo langar mig að deila með ykkur gott fólk þessari frábæru síðu sem Zack benti mér á, ég ætlaði nú varla að halda vatni yfir þessu öllu saman! enjoy .......... www.mulletsgalore.com

laugardagur, maí 01, 2004

*Þrumur og eldingar*
Já það er búið að vera rosa skemmtilegt veður í dag, voða skemmtilegt ef maður er inni! Já það var svo mikil riging í dag að ég sá ekki út um gluggann minn, non joke! Hef aldrei séð aðra eins rigningu! og síðan komu þrumur og eldingar og auðvitað sat ég gáttuð og starði út um gluggann og kipptist alltaf smá til þegar þruman kom og fékk smá svona hræðslukitl í magann! Já og það var ekki bara ég sem fékk smá svona hræðslukast, og finnst mér það bara eðlilegt þar sem við Íslendingar höfum nú ekki mikla "reynslu" af svonalöguðu nema á ferðalagi kannski! Já allavega var ein stelpa sem býr með mér það hrædd að helst mátti ekki opna glugga því eldingin gæti komið inn og drepið okkur! jájá! En allavega þetta var mjög gaman og gluggarnir nötruðu í húsinu!!

Já jæja þetta laugardagskvöld fer barasta í það að glápa á DVD, leigði mér núna þýzka mynd þar sem ég er nú einu sinni hérna í Þýzkaralandi og ætti að vera að kynna mér menningu og svona eitthvað. Já hún heitir Flashback og á að vera ansi blóðug. Annars horfði ég á Titus (William Shakespeare) með Anthony Hopkins í aðalhlutverki, brjáluð mynd, nóg af ofbeldi þar, sem reyndar fær mann annað slagið til að líta undan og taka andköf en samt hin fínasta afþreying og mæli ég hiklaust með henni!

Já og síðan næsta laugardag þá er Sommerfest hér í Haus Rothenburg. Já já live hljómsveit og læti, 3 € inn og svo bjórinn á 2€. það verður örugglega svakalegt! www.tuebinger-rothenburg.de er síðan vefsíða húsins míns ef einhver hefur áhuga á að líta inn!