miðvikudagur, ágúst 03, 2005

hor og slím

Skellti mér til Eyja á einnar nætur þjóðhátíð með fellow júllz. Gleði og góðar minningar er ekki það eina sem ég fékk út úr þessari eyjaferð, neibb, er sko búin að liggja uppí rúmi með hita og hor síðan ég kom heim. Það versta við þetta allt er nú samt það að Udi minn er að koma á morgun, já versta því ég þarf náttla að vera sæt og sexy eins og Jessica þegar kallinn kemur, en ekki nefmælt og hnerrandi! En ég redda þessu, bæti bara við nokkrum umferðum af meiki á rauðan nebbann!
Jæja ég ætla að halda áfram að svitna og snýta mér!

Annars eru myndir frá eyjum http://public.fotki.com/aslauge/eyjarrrr/