*lestarstöðvarpöbbar eru stórmerkilegir*
Fór og hitti Jonathan og Zack á Hauptbahnhof pöbbnum í gær sem sagt og já það var áhugavert. Lestarstöðvarpöbbar eru öðruvísi. Það eru til margar týpur af pöbbum, þessi sem allt fína, flotta og jafnvel fræga fólkið fer, þessi þar sem "kúl" fólkið fer, stúdenta/kommúnista pöbbinn og fleiri tegundir. Merkilegast er lestarstöðvaeintakið, þar eru allar tegundir af fólki! Í gær fylgdist ég með fólki sem kom og fór, þarna var Craig David týpan (sem er rosalega "hot" look hérna í G-many), við hlið hans var djammdruslan með aflitað hár og allt tilheyrandi, svo kom homminn, hehe, rosa töff með sólgleraugu og dana-look, 5 stelpur droppuðu inn allar með mislitandi hárkollur, bleika, bláa, græna..., róninn var að sjálfsögðu þarna, konan sem heillaði Jonathan algjörlega upp úr skónum, já hún var spes, hún leit alveg út eins og kvikmyndastjarna (og ég sagði henni það). Já síðan var það þjóninn sem að hnerraði ofan í eina súpuna sem hann var að bera fram, hann var hommi og kunni kínversku. já og gaurinn sem var alltaf að handa inn í eyrað á Zack. já og fleiri og við normalið!
já stórmerkilegt
en jafnvel merkilegra nokk! Er Bush búinn að fara í lítaaðgerð??
