mánudagur, júní 28, 2004

*fordómar gagnvart útlendingum*

já er að skrifa ritgerð um fordóma og þarf að skrifa það útfrá sjónarmiði upplýstrar ungrar konu sem að hefur setið í Alþjóðleg samskipti tíma alla önnina og eins og kúrsinn hafi haft agalega góð áhrif á mig, en mig langar frekar bara að segja að útlendingar eru viðbjóðslegir, þeir lykta illa og snýta sér við matarborðið. Sumir eru samt ágætir.
Danir duttu út í gær, ég er ekki lengur hvít og rauð. Já en samt þrátt fyrir að hafa haldið með þeim þá var ég viss from the get go að sko Tékkland myndi vinna, já ég er orðin fótboltaspekúlant.
Er búin að vera að velta því fyrir mér hvort ég ætti að fara að skrifa hér á ensku svo að þessu fáeinu útlendingar sem að er vert að eyða einhverri orku í gætu nú líka fylgst með hvað er að gerast, þessi tvö skipti sem ég blogga á ári. En þá sjáiði öll hvað enskan mín er orðin slöpp og ég á eftir að skammast mín, en náttla practice makes perfect ha! (shit vona að þetta hafi verið rétt skrifað!!)
Udi í Rússlandi, Kidda farin að sofa, Solla í skólanum til 10, Zack að kærastast... ég ein heima að surfa. mar hefur svo sem gott af því að fá af og til hang kvöld, þá kann maður betur að meta skemmtilegu tímana, bull.
Hvað er framundan hjá mér, jú verkefna og ritgerðarskil, Stiftungsfest hér á laugardaginn, þá koma fyrrverandi íbúar Rottuborgar og við gerum margt skemmtilegt saman og svo er það náttla að fylgjast með boltanum bara.
hastala

sunnudagur, júní 27, 2004

*það var mikið*

jább komnar myndir hérna inn og ég ætla að vera dugleg að skella þeim inn!!

föstudagur, júní 11, 2004

*þetta fer að koma*

já ég lofa
var enn og aftur að fikta eitthvað í þessu og var svo byrjuð á að skrifa ferðasöguna en var trufluð
og svo koma myndir inn á næstu vikum, er bara rosa mikið að gera hérna í skólanum núna!
farin út að hitta Z