þriðjudagur, október 26, 2004

léleg

já ég veit, bloggsamviskan alveg að naga mig

bið afsökunnar

já nú líður mér aðeins betur

fékk mér currywurst áðan í kvöldmat, sérdeilis gott, hollt og gott, feit würst með tómó og curry. Sat þarna á gourmet veitingastaðnum X (las í bækling að þeir selji bestu franskar í Baden-Würtemberg) og var að láta tímann líða, því það var rigning og enn 30 mín í strætóinn minn (sem kemur á klst fresti og ekki eftir kl 20) og ég nýtti mér því þennan tíma til að virða fyrir mér umhverfið. Og ég fór að lesa á fjölmörgu posterin sem hengu þarna upp um alla veggi og, eins og svo oft kemur fyrir, þá las ég alveg kolvitlaust og leið dágóður tími og miklar vangavelltur áður en að ég áttaði mig á því að það stóð alls ekki liverrock heldur liverock, ég verð nú bara að ég varð nú bara nokkuð fegin.
Annars fannst mér frekar óhuggulegt þegar ég stóð þarna og beið eftir að fá matinn minn og þeir voru að tala saman mennirnir á arabísku og voru að gera svona skera á háls látbragð og hlæja, æi kannski er það bara ég en mér fannst þetta pínku óhugnalegt, svona ef maður hugsar til ástandsins þarna niðurfrá.

Annars er ég bara stillt, læri bara og undirbý kennsluna, djammaði ekkert um helgina, það var nú bara ágætt. Ég var svo stressuð yfir fyrsta kennslutímanum sem gekk síðan bara ágætlega.

æi ég nenni ekki meir, klukkan er orðin þannig að ég ætla í háttinn

en svona að lokum þá var Solla mín að skella inn myndum, þar á meðal allblóðugum!! www.solla.tk tjekk it out

sunnudagur, október 10, 2004

MYNDIR

Komnar nýjar myndir!!