Ach du lieber Gott!
Enn einu sinni er ég komin í þennan vítahring, leiðist en er of löt til að gera eitthvað í því! Eða kannski minna löt og meira þreytt enda er þriðjudagur sá dagur sem ég vakna klukkan 8 og kem ekki heim aftur fyrr en kl. 8 og þá búin að vera að kenna í allan dag. Búin að drekka 3 bolla af kaffi í dag, sem er andskoti mikið miðað við það að ég er ekki svona verð-að-fá-bolla-á-dag manneskja. En það skrítna er að ég verð bara þreytt á að drekka kaffi - er það ekki soldið mikið skrítið?
Hvað er annars að frétta? Tja (já Tja! er kúl, jafnvel þó Þorsteini Guðmundssyni, sem mér finnst jú æði, finnist það ekki), það er nú ekki mikið, ég horfði jú á Eurovision og er mjög sátt við úrslitin. Ég verð nú að segja að ég var nú smá pínku ponsu hneyksluð á pjötlunum sem sumar klæddust þarna á sviðinu og fannst mér því frábært að ófrýnileg skrímsli hafi hreppt hnossið. En svona er þetta víst orðið, þú selur ekki plötu nema þú sýnir vel af holdi.
Mér fannst reyndar þýska lagið alveg rosa cute, en æi er Eurovision ekki að missa "it's flare"? Texas lightning from Germany?? Er þa? Og svo náttla öll austantjaldslöndin kjósa bara hvort annað! Og svo t.d. gáfu Þjóðverjar Tyrklandi 12 stig - afhverju?? Jú það eru nú yfir 2 milljónir tyrkneskra innflytjenda hér. Og svona er þetta bara að verða! Er ekki best að fá bara dómara aftur í þetta, held að almenningur ráði ekki við þetta vald sem hann hefur.
Jæja klukkan er orðin.
