þriðjudagur, nóvember 09, 2004

niaR rebmevoN

Já halló

snilld, snIIIld
ég og Sollubuff ákv að hittast í gærkvöldi eftir erfiðan dag og fá okkur eins og einn eða svo! Knæpan Alt Tübingen varð fyrir valinu og vá hvað ég er ánægð með þá ákvörðun! Þegar við komum inn þá var okkur strax boðið að taka þátt í tónlistargetspá, það voru spilaðir bútar úr misþekktum lögum og áttum við að finna út hver flytjandi var og nafn lagsins! Þetta var æsispennandi, ein lotan var meira segja þannig að þeir spiluðu brotin afturábak og ein lotan hét Blitzlota og þar var spilað svona eins og 3sek brot!! Ég og Solla vorum ON FIRE! í afturábak lotunni spörkuðum við í rassa! Við lentum í öðru sæti, borðið sem vann var stærra þannig að þau já unnu og fengu do-it-yourself Capi körfi í verðlaun! Ég verð að fara aftur næsta mánudag! Keppnisandinn var alveg að gera útaf við okkur og vorum við stöllur farnar að titra úr spenningi!! Það var beitt alskonar trikkum, því það var hægt að krækja sér í extra stig ef maður var sniðugur! Borðið sem vann fór út á gólf að dansa, og ég hélt nú ekki!! fór bara og dansaði enn meira (vil samt benda á það að ég var bláedrú!) og fyrir vikið fengu bæði borð tja vinning! sem var Ahoj Tequila!! sem er Tequila drukkið þannig að þú færð pakka af Ahoj dufti (líkt CoolAid) sturtar honum upp í þig, staupar Tequilað og hristir svo hausinn! Þetta er bara alveg frábært! miklu betra en þetta salt-sítrónu rugl! mæli með þessu!

Kennslan gengur ágætlega, þau virðast halda að ég viti eitthvað hvað ég er að gera, sem er bara frábært!
Eyddi einum og hálfum tíma áðan í að þrífa eldhúsið án þess að þurfa virkilega að gera það, bara til að komast hjá því að þrífa mitt eigið herbergi eða læra!

jæja, ánægð með mig maður 2 blogg á 2 dögum, ussss

1 Comments:

Blogger Áslaug Einarsdóttir said...

miiig langar í Ahoj tequila! virkar skemmtilegt...
djö hvað þú ert dulleg að blogga kona!

5:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home