sunnudagur, nóvember 14, 2004

eaby!!!!!!

....3...2...1 jáaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
jább svona einhvern vegin er ebay auglýsingin og svona einhvern vegin var ég í dag þegar ég bauð í nýju DIGI-una mína!! veiiiiii Samsung Digimax U-CA 3!! ég hélt ég færi yfirum af spenningi og síðan varð mér ljóst að ég hafði unnið og þakið ætlaði af húsinu!! núna verður sko myndað!

en passið ykkur ebay er óvanabinandi.

er að spá í að skella mér til Zack, talaði við hann áðan og ég fékk tímatöflu varðandi heimsóknir, þ.e.a.s. t.d. (hehe vá geðv að skrifa bara í skammstöfunum!) í dag þá gat ég komið fyrir 3, en milli 3 og 6 er hann sem sagt upptekinn að kenna tékknesku stelpunum ensku og að senda nemendum sínum e-mail (hann þarf að senda eins og 300 á viku), milli 6-8 gat ég komið en hann gæti átt von á símtali frá foreldrum sínum og þá þyrfti ég að þegja og horfa bara á sjónvarpið og svo kannski á milli 7-8 ætlar Eva að elda og svo á milli 8-10 þá er mynd í sjónvarpinu (sunnudagsmyndin) og á hana skal horft. Annars er ég velkomin hvenær sem er!

ég er orðin hooked á hohes C - multi vitamin - multi Frucht safa og svo líka Mango safa og ég á bara eitt glas eftir og það er sunnudagur og allt lokað og ég bara veit ekki hvað ég á að gera. fokking þjóðverjinn.

Ég vil koma einu hérna á hreint og það er ....... ONE TREE HILL ERU BESTU SJÓNVARPSÞÆTTIR Í HEIMI. Shit draaaaaaaamaað þetta er frábært, ég þarf ekki að lifa mínu eigin lífi því ég fæ allt sem ég þarf í gegnum þessa þætti.

jæja ég held að ég hafi núna eitt alveg nógu mörgum klukkustundum fyrir framan þennan skjá, eða svona eins og kannski 7! ok svona 1 og hálfum eyddi ég í eitthvað uppbyggilegt, jú og svo eins og einum á ebay, sem er eiginlega bara líka uppbyggilegt, og svo hinu í bull. tja eða er það bull að fylgjast með gangi heimsins via blogg? hvað ert þú annars að gera akkúrat núna??

3 Comments:

Blogger Áslaug Einarsdóttir said...

akkkúrat núna er ég að sjálfsögðu að eyða tíma... hugsa um að ég ætti að vera að gera eitthvað uppbyggilegt... en lesa frekar blogg og geispa. Svo verð ég mega þreytt á morgun þannig að ég sef sennilega yfir mig útþví ég fór ekki að sofa heldur kommentaði á öll blogg sem ég veit um.... spurðu mig að því sama annaðkvöld, mjög líklega sama svarið.

12:46 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

neipp Americas next top model er best!
LLaraa

9:00 e.h.  
Blogger Solla said...

óvanabindandi já? gotta try that ! :D

4:32 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home