aaaahhhhhhhhhhhhhhh....
.... þetta er ánægjustuna eftir að hafa fengið tvöfaldan ráðlagðan dagskammti af súperdrama! jább ONE TREE HILL, orð fá þessu ekki lýst!
enda átti ég það skilið! var í Einführung in die neuere deutsche Literatur kúrsnum mínum í dag, þetta er kúrsinn þar sem ég slekk á hlustuninni og fer í hmm-hvað-ætli-þessi-sé-að-hugsa leik eða dæma-fólk-eftir-útliti leikinn. Fyrsti leikurinn endist ekki í nema eins og 5 mínútur eða svo því mér varð strax ljóst að flestir væru nú bara að hugsa nákvæmlega það sama og ég, tja ekki nákvæmlega, en allavega pottþétt að þeim langaði til að skjóta kennarann og stelpurnar sem voru að halda fyrirlestur, pottþétt. Þá var komið að leik #2, sem ég verð að segja að er örugglega langt um ánægjulegri hérna í G-maniu þar sem flóran er mun ríkari. Ég byrjaði á stelpunni sem sat á móti mér, ósköp laglegt grey, eða þangað til að ég tók eftir því hvað hún var með abnormal langan háls sem var þakinn fæðingarblettum eða einhversskonar blettum eða allsskonar blettum. Síðan voru það stelpurnar þar við hliðin á, líka sætar stelpur (já það eru alveg til sætar þýskar stelpur) en þær höfðu greinilega farið í 2for1 tilboðið hjá GetHugeLips og virðast vera sáttar við sitt, gott fyrir þær. Ég varð svo alveg rosalega glöð þegar ég leit aðeins til vinstri og sá mann þar sofandi, huh ég get allavega haldið mér vakandi! Síðan var það gaurinn með vængjahárgreiðsluna, það fer alveg í mínar fínustu. Gaurinn með einkennilega stóra hausinn og hárgreiðslu sem hjálpar ekki. Stelpa sem var með barta, stelpa með augu sem eru svona 2/3 af andlitinu á henni, strákur með hár sem virðist vaxa beint upp í loftið. Ég tók síðan líka eftir trendi já stelpunum, mjög svo ljósar, afar þröngar teygjugallabuxur með comes-with-matching-belt belti - er það kúl? Ég gæti haldið áfram, t.d. krítisírað tíkurnar sem ég ætla aldrei að sitja við hliðiná aftur, sem gefa mér alltaf þú-heimski-útlendingur-kurteisis bors, hata þær. Svo eru þær ekkert að fara leynt með það þegar þær eru að tala um mig, pískra og benda! HALLÓ, ÉG SIT HÉRNA! það á að losa heiminn við svona fólk, ég reyndi fyrir nokkrum vikum að tala við þær, sat sem sagt hjá þeim, áttum reyndar að vera að gera verkefni saman (var ekkert bara að reyna að vera eitthvað kammó) og þá snéri sú sem sat við hliðin á mér bara bakinu í mig og sagði að þær vissu sko alveg hvað þær væru að gera!
Og þetta var bara helmingurinn af bekknum, hinn helminginn sá ég ekki, þarf sem þau sátu nú sömu megin og ég!
annars er ég mjög tolerant

4 Comments:
ErlaDögg er alltaf m myndir af sætum dönum og öðrum sætum strákum... og þú sannar þessa ímynd sem ég hef af þýskumælandi fólki "hár sem virðist vaxa beint upp í loftið" (oftast aflitað í ímyndunum mínum) og "mjög svo ljósar, afar þröngar teygjugallabuxur með comes-with-matching-belt belti" svona snjóþvegnar erhaggi? og var gaurinn ekki í hvítum eidís Billy Idol hlýrabol?
afhverju er ég aftur að fara til austurríkis??? remind me?
kv.áslaug
ja sko
en sko
það voru líka alveg sætir strákar!
Mér finnst ljósar ljótar gallabuxur flottar!!
aei...greyin... their geta verid SVO hallaerislegir thjodverjarnir ...
Skrifa ummæli
<< Home