sunnudagur, nóvember 28, 2004

svo mikil þoka að ég sé ekki út um gluggann

hædíhó

soldið fyndið svona þegar ég hugsa út í það að ég er farin að djamma frekar á virkum dögum en um helgar! ágætis djamm tekið á miðvikudaginn og svo var það bara DVD gláp fös og lau!
Horfði á Spiderman 2 í gær, þvílík andskotans vitleysa! Á föstudaginn horfði ég á Harry Potter and the prisoner of Azkaban, hún er frábær! ég get ekki beðið eftir næstu. Er búin að lesa núna bækur 2 og 3 og ætla að kaupa mér 4! Versta er samt að þegar ég les þetta þá er ég svo inni í þessum heimi og þegar ég legg frá mér bókina þá tekur bara við þessi hundfúli heimur þar sem ég þarf að læra bókmenntafræði í stað seiðablöndun.

Var að spá í að vakna og vera healthy og skella mér út í göngutúr, en það er nú ekkert rosa gaman þegar mar sér ekki það sem er 2 metrum fyrir framan mann.

Er bara farin að hlakka til að fara heim um jólin skal ég segja ykkur, fjölskylda og vinir og svo Stebbi og Eyvi á Þorláks! Ég og Stebbi, we go way back!

Ég á afmæli eftir 16 daga!! Er einmitt að horfa á afmælisgjöfina mína frá meðbúendum mínum frá því í fyrra, það var National Geographic dagatal (sem ég var ekkert rosa ánægð með fyrst en finnst frábært núna og er hálffúl að ég eigi bara einn mánuð eftir) og mér finnst svolítið fyndið svona að í nóvember skuli vera mynd af eyðimörkinni í Saudi-Arabiu, já já ég veit að í eyðimörkinni í Saudi-Arabiu snjóar ekkert, en æi, svona bara smá pæling!
Og svona fyrir þá sem eru ekki alveg alveg vissir þá er það 13. DESEMBER.

eigiði nú góðan dag og tjekkið á nýjum myndum ->

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home